mánudagur, janúar 9
Breyttur opnunartími verður á skrifstofu Sigurvonar á þriðjudögum í janúar til maí, í stað opnunartíma 10:00-12:00 verður opið 13:00-15:00, óbreyttur tími verður á miðvikudögum, 10:00-12:00 og fimmtudögum 11:00-13:00. Vinir í Von komu saman í fyrsta sinn á nýju ári síðasta laugardag og voru kræsingar á borðum. Fyrsta félagsvist á nýju ári verður annað kvöld kl. 20:00, hvetjum við félaga, velunnara, sem vini og vandamenn að mæta og taka hressilega í spil á nýju ári.
fimmtudagur, desember 22
fimmtudagur, nóvember 10
Jólakort 2011 !
Jólakort 2011 !
Myndir Ágústar prýða jólakort Sigurvonar !
Tvö ný jólakort Krabbameinsfélagsins Sigurvonar á norðanverðum Vestfjörðum eru komin í prentun. Aftur eru þau prýdd myndum áhugaljósmyndarans Ágústar G. Atlasonar . Ágúst vill styrkja gott málefni og gefur því félaginu afnot af myndunum. Ágúst hefur verið öflugur í ljósmyndun undanfarin misseri og haldið víða sýningar. Hann hefur fengist við ljósmyndun síðan 1990. Einstakt landslag Vestfjarða er vinsælt myndefni hjá Ágústi og þarf engan að undra það miðað við fegurðina á meðfylgjandi myndum sem prýða tvö af jólakortum Sigurvonar. Jólakortin koma í sölu von bráðar en ágóðinn rennur í styrktarsjóð Sigurvonar.

miðvikudagur, nóvember 9
Aðalfundur 15. nóvember kl. 20:00 !

Aðalfundur Sigurvonar verður haldinn
n.k. þriðjudag, 15. nóvember kl. 20:00
að Pollgötu 4.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.
Hvetjum alla til að mæta !
Vel var mætt á fyrirlestur sem fram fór síðasta laugardag á Hótel Ísafirði, í tilefni af 10 ára afmæli Sigurvonar. Boðið var upp á súpu í hádeginu og þökkum við góðar mótttökur. Hér má sjá myndir
Jólakortin eru komin í prentun og væntanleg í verslanir í lok næstu viku !
miðvikudagur, nóvember 2
Sigurvon 10 ára !
n.k. laugardag kl. 11:00 á Hótel Ísafirði.
Boðið verður upp á súpu og kaffi í hádeginu.
Lára G. Sigurðardóttir læknir
hjá Krabbameinsfélaginu
hjá Krabbameinsfélaginu
og doktorsnemi í lýðheilsu flytur fyrirlestur um
Konur – Lífsstíl – Krabbamein
Til stóð að bjóða einnig upp á beinþéttnimælingu eftir hádegi, en því miður bilaði mælirinn og ekki víst að hann komi vestur í tíma, höfum bara annan í afmæli mjög fljótlega, ef ekki tekst að laga mælinn fyrir laugardag :o)
Allir velkomnir - stjórnin !
laugardagur, október 8
Bleikur dagur og fundir í R-vík. !
Nú er skrifstofan böðuð bleiku ljósu að utan og rosa flott. Starfsmenn aðildarfélaga KÍ hittust í gær morgun í Reykjavík, funduðu og sátu fyrirlestur fyrir hádegi. Í hádeginu var snætt á veitingastaðnum HAPP og eftir hádegi var fyrirlestur á LÍ. Fyrirlesturinn heitir Veikindi og vellíðan, fluttur af Margréti Bárðardóttur sálfræðingi. Í morgun hófst Formannafundur KÍ og fer hann fram á Akranesi. Til stóð að halda hann í Vestmannaeyjum eins og í fyrra, en enn og aftur kom sandur í Landeyjahöfn í veg fyrir þær fyrirætlanir, þetta hefst í þriðja sinn og voru allir sammála því að betra væri að funda í Eyjum að vori en hausti :o) Til gamans er hér þessi flotta uppskrift af peysu með bleiku slaufunni, frí á Facebook !
föstudagur, september 30
Hvunndagshetjur með bleika slaufu !
| Zulukonur - hvunndagshetjur ! |
| Hvunndagshetjurnar Lóa Ara og Júlía rafvirki ! |