miðvikudagur, febrúar 15

Héldu tombólu til styrktar Sigurvon

TombólaStúlkurnar stóðu vaktina við tombóluborðið í gær. F.v. Aðalheiður Bára Hjaltadóttir, Lovísa Halldórsdóttir, Dagmey Kristjánsdóttir, Sigrún Gunndís Harðardóttir og Lilja Júlíusdóttir.
Fimm ungar stúlkur héldu tombólu í gær í bakgarðinum við Hafnarstræti 8 á Ísafirði til styrktar krabbameinsfélaginu Sigurvon. Ungu dömurnar létu ekki kulda og fámenni á sig fá enda er málefnið gott. Miðinn hjá þeim kostaði 50 krónur og voru glæsilegir vinningar í boði. Þannig höfðu þær náð að afla ríflega eitt þúsund krónur þegar ljósmyndara blaðsins bar að garði, síðdegis í gær.

BÆJARINS BESTA (bb.is), 15. APRÍL 2004.