þriðjudagur, október 3

Bleika slaufan

Bleika slaufanBleika slaufan er alþjóðlegt merki átaks til að vekja athygli á brjóstakrabbameini. Bleiku slaufurnar má nálgast í rúmlega þrjátíu verslunum hér á landi sem selja vörur frá Estée Lauder. Á Ísafirði fást þær einnig á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði og í Ísafjarðar-apóteki. Öllum ágóða af sölunni verður varið til verkefna sem valin verða í samráði við Krabbameinsfélagið og Samhjálp kvenna, sem eru samtök kvenna sem greinst hafa með krabbamein í brjóstum. Ár hvert greinast 160-170 íslenskar konur með brjóstakrabbamein, þar af er nær helmingurinn á aldrinum frá 30 til 60 ára. Fjöldi nýrra tilfella hefur verið að aukast en lífshorfurnar hafa einnig batnað mikið.

Áhugasömum er bent á að ýmsar gagnlegar upplýsingar um brjóstakrabbamein og árveknisátakið má finna á vefnum bleikaslaufan.is.