föstudagur, september 5

Göngum saman á Ísafirði !

Styrktarganga Göngum saman verður á Ísafirði næstkomandi sunnudag, 7. september. Gengið verður frá Bónusplaninu kl. 14:00. Þátttökugjald er 3000 kr. sem rennur beint til rannsókna á brjóstakrabbameini. Frítt er fyrir börn, 12 ára og yngri. Boðið verður upp á hressingu að göngu lokinni. Það eru Krabbameinsfélagið Sigurvon og Heilsuefling í Ísafjarðarbæ sem standa fyrir göngunni hér á Ísafirði. Íbúar á Ísafirði og nágrenni eru hvattir til að mæta og ganga saman í skemmtilegum félagsskap og stykja um leið rannasóknir á brjóstakrabbameini.

Göngum saman er félagsskapur á landsvísu sem hefur það að markmiði að safna fé til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Öllum er velkomið að gerast félagar og styrkja þá um leið verðugt málefni. Allar nánari upplýsingar um félagið er að finna á heimasíðunni www.gongumsaman.is

Fyrir hönd Krabbameinsfélagsins Sigurvonar og Heilsueflingar í Ísafjarðarbæ

Sigurður Ólafsson
Sigríður Ragna Jóhannsdóttir