laugardagur, nóvember 28

Vinir í Von í kransagerð !

Kolbrún með hurðakrans !
Vinir í Von komu saman í morgun og gerðu ýmist hurðakransa eða aðventukransa. Kolbrún Smith leiddi hópinn og voru gerðir margir flottir kransar. Boðið var upp á kaffi, heitt súkkulaði og smákökur. Mikið var spjallað og góð mæting. Næst koma Vinir í Von saman laugardaginn 12. desember kl. 11 og er mæting á sama stað og áður, eða að Mánagötu 6, í húsnæði Vesturafls. Dagskrá verður auglýst nánar fljótlega.