þriðjudagur, mars 20

Beinþéttnimæling í Heilsusetrinu !

Sigurvon verður með beinþéttnimælingu í Heilsusetrinu (þar sem Sparisjóðurinn var) í dag, þriðjudag frá kl. 14-18 og á morgun miðvikudag frá 10-18. Auður Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur verður á staðnum og sér um mælingarnar. Vonum við að fólk nýti þetta tækifæri, en Sigurvon fékk mælinn lánaðan í mjög skamman tíma. Mælingin kostar 1.500 kr.

Vinir í Von áttu fjörugan fund s.l. laugardag í Vesturafli og minnum við á næsta fund, laugardaginn 31. mars á sama stað.