sunnudagur, september 7

Myndir frá "Göngum saman" !

Hluti göngugarpa !Góð mæting var í "Göngum saman" þrátt fyrir lítinn fyrirvara. Kunnum við öllum bestu þakkir fyrir þátttökuna og ekki síst Gamla Bakaríinu og Ölgerð Egils, sem gáfu hressingu í lok göngu. Viljum einnig þakka Heilsueflingu Ísafjarðarbæjar ásamt Landsbankanum, sem styrkir grasrótarhreyfinguna "Göngum saman" og gefur buffin sem afhent eru við upphaf göngu. Verðum með lengri fyrirvara að ári, sjáumst ! Hér eru myndir frá göngunni í dag !