miðvikudagur, febrúar 15

Verðlaun til reyklausra unglinga

reyklausir unglingarTóbaksvarnarnefnd og Krabbameinsfélag Íslands hafa undanfarin ár veitt 200 reyklausum unglingum í 9. og 10. bekkjum í grunnskólum landsins viðurkenningu fyrir að vera reyklaus. Í ár hlutu sjö nemendur á norðanverðum Vestfjörðum verðlaun. Fimm nemendur úr Grunnskóla Suðureyrar fengu verðlaun og tveir úr Grunnskóla Ísafjarðar. Fulltrúar Krabbameinsfélagsins Sigurvonar á norðanverðum Vestfjörðum afhentu verðlaunin.

BÆJARINS BESTA, bb.is, 31. DESEMBER 2002.