fimmtudagur, apríl 6

Vel lukkaður aðalfundur !!

Lóa og Dúddi (mynd tekin á síma)Aðalfundurinn í kvöld lukkaðist vel og voru kaffi og kræsingar í boði Sparisjóðs Vestfirðinga. Ágætlega var mætt á fundinn og barst félaginu stórkostleg peningagjöf frá Halldóri Magnússyni (Dúdda Magg) og frú, eiga þau hjónin bestu þakkir skildar fyrir og ekki spurning að peningarnir munu nýtast vel í starfi félagsmanna. Una Gunnjóna félagsráðgjafi hjá KÍ var með erindi um áhrifamátt bænarinnar og var það mjög fróðlegt og skapaði þó nokkrar umræður. Eins var mikið spjallað um "Orlofsdvölina" og verða nánari upplýsingar um "dvölina" settar inn fljótlega