fimmtudagur, mars 9

Varað við ljósabekkjanotkun fermingarbarna

Varað við ljósabekkjanotkunÞessa dagana er verið að senda foreldrum og forráðamönnum fermingarbarna póstkort þar sem bent er á hætturnar sem fylgja því að ungt fólk fari í ljósabekki. Skilaboðin á kortinu eru frá Félagi íslenskra húðlækna, Geislavörnum ríkisins, Landlæknisembættinu og Krabbameinsfélaginu. Þetta er þriðja árið sem þessir aðilar standa saman að fræðsluherferð undir slagorðinu “Hættan er ljós”.

Á póstkortinu er vakin athygli á því að börn og unglingar séu næmari en aðrir fyrir skaðlegum áhrifum geislunar frá ljósabekkjum og sól. Bent er á að tíðni húðkrabbameins hafi aukist mikið á síðustu árum, einkum tíðni svonefndra sortuæxla, en þau eru alvarlegasta tegund húðkrabbameins og algengasta tegund krabbameins hjá konum á aldrinum frá 15 til 34 ára. Foreldrar og forráðamenn fermingarbarna eru hvattir til að hafa í huga tilmæli alþjóðastofnana um að börn og unglingar fari ekki í ljósabekki.

Í samvinnu við Biskupsstofu hefur verið leitað til presta landsins um að leggja málefninu lið og dreift hefur verið veggspjöldum sem hengd verða upp þar sem fermingarfræðsla fer fram.

Í kjölfar fræðsluherferðanna síðustu tvö ár hefur dregið verulega úr ljósabekkjanotkun ungs fólks og nokkrar sveitarstjórnir hafa hætt að bjóða upp á sólböð í ljósabekkjum í íþróttamannvirkjum sínum. Með herferðinni nú er stefnt að því að draga enn frekar úr ljósabekkjanotkuninni.

Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins greinast að meðaltali 45 manns á ári með sortuæxli í húð, 45 með önnur húðæxli og um 170 manns með svonefnd grunnfrumuæxli í húð. Tíðni húðæxla í heild hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum.

Frétt frá Félagi íslenskra húðlækna, Geislavörnum ríkisins, Landlæknisembættinu og Krabbameinsfélaginu, 9. mars 2006.

Upplýsingar gefur Halla Grétarsdóttir fræðslufulltrúi hjá Krabbameinsfélaginu, sími 540 1900.