þriðjudagur, október 24

5 ára afmæli Sigurvonar 4. nóvember !!

Sigurvon 5 áraÍ tilefni af því að Krabbameinsfélagið Sigurvon er 5 ára, verður haldinn afmælisfundur á Hótel Ísafirði, laugardaginn 4. nóvember n.k. kl. 14:00. Gestafyrirlesarar verða læknarnir Sigurður Björnsson, formaður stjórnar Krabbameinsfélags Íslands og Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. Boðið verður upp á tónlistaratriði og kaffi og meðlæti verður í boði Sparisjóðs Vestfirðinga. Allir hjartanlega velkomnir !
Stjórnin