fimmtudagur, október 16

Aðalfundur gekk vel !

Aðalfundur Sigurvonar !Aðalfundur Krabbameinsfélagsins Sigurvonar fór fram í gærkvöldi á Hótel Ísafirði. Var mikið spjallað og gekk fundurinn vel og meðlæti rann ljúft niður í boði Sparisjóðs Vestfirðinga. Farið var yfir starf félagsins árið 2007 og kosin óbreytt stjórn. Félagsgjöld verða áfram 2.000 kr. og vill félagið nota tækifærið og þakka allan þann stuðning sem það hefur fengið frá upphafi !