þriðjudagur, maí 11

Samráðsfundur KÍ og aðalfundur KÍ !

Föstudaginn 7. maí fór fram sameiginlegur fundur allra svæðafélaga KÍ, en þá koma saman stuðningsfélög af öllu landinu og bera saman bækur sínar. Morguninn fór í fróðlegt spjall og eftir hádegi var farið yfir heimasíðu KÍ, en þar standa yfir miklar breytingar. Á laugardeginum var aðalfundur KÍ haldinn fyrir hádegi og haldið í hádegismat í Perlunni. Ýmsir fyrirlestrar voru fluttir eftir hádegi og þrátt fyrir mikinn niðurskurð var létt yfir öllum og bjartsýni ríkjandi !