miðvikudagur, maí 19

Vinir í von fagna vetrarlokum !

Vinir í von koma saman í síðustu samverustund vetrarins 30. mai n.k. og ætla að gera sér glaðan dag, eða öllu heldur gleðilega kvöldstund. Mæting verður í aðstöðu Vesturafls að Mánagötu 6, Ísafirði og er stefnan að panta saman mat og eiga saman góðar stundir eftir yndislega samveru á liðnum vetri. Nauðsynlegt er að skrá sig svo hægt sé að áætla kostnað. Auður H Ólafsdóttir tekur við skráningum í síma 692 3580 !