fimmtudagur, október 7

Bleikur föstudagur !

Bleikur Föstudagur !
Starfsfólk Krabbameinsfélags Íslands hvetur fyrirtæki til að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameini hjá konum og hafa „Bleikan föstudag." Krabbameinsfélagið mælist því til þess að starfsfólk mæti til vinnu á föstudag í bleikri flík eða með bleikan fylgihlut. „Þetta getur skapað afskaplega skemmtilega stemmningu á vinnustaðnum, unnt er að halda keppnir um flottasta dressið eða einfaldlega hafa bara gaman af og um leið vekja athygli á árveknisátakinu gegn krabbameini hjá konum,“ segir í tilkynningu. 

Starfsfólk Krabbameinsfélagsins óskar ennfremur eftir því að fólk sendi félaginu myndir frá Bleika föstudeginum á netfangið laila@krabb.is þannig að hægt sé að setja það inn á síður félagsins, www.krabb.is ogwww.facebook.com/bleikaslaufan.