þriðjudagur, desember 5

Blettadagur föstudaginn 15. desember n.k.!

Blettaskoðun 15. des.Krabbameinsfélagið Sigurvon verður með Blettadag föstudaginn 15. desember n.k. í samvinnu við Heilsugæslustöðina og Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði. Blettaskoðun verður í boði fyrir alla sem þess óska og verða læknarnir Fjölnir Guðmundsson og Þorsteinn Jóhannesson við þennan dag, milli kl. 13:00 og 16:00. Fólk er hvatt til að notfæra sér þessa þjónustu og láta lækna ákveða hvort ástæða sé til að fjarlægja fæðingarbletti eða aðra bletti. Ekki þarf neinar tímapantanir og hvetjum við fólk eindregið til að mæta og notfæra sér þessa fríu þjónustu