þriðjudagur, júní 14

Sólstöðuganga til styrktar Sigurvon !

Félagar, velunnarar og aðrir sem áhuga hafa á málefnum Krabbameinsfélagsins Sigurvonar. Ferðaþjónustan í Arnardal mun halda upp á miðsumarnætur í Arnardal 24. og 25. júní n.k. 

Meðal annars verður farin kvöldganga laugardaginn 25. júní, kl. 19:00. Gengið verður frá Súðavík yfir í Arnardal undir leiðsögn Barða Ingibjartssonar og Önnu Lindar Ragnarsdóttur. Áætlaður göngutími er 3-4 klukkutímar. Sætaferðir verða frá Hamraborg kl. 18:00 og úr Arnardal til Ísafjarðar um miðnætti og kl. 03:00, kostar hver ferð 500 kr.

Þátttökugjald er 1.500.- krónur og rennur það óskipt til Sigurvonar. Göngufólk og aðrir áhugasamir notið nú tækifærið og gangið ykkur til heilsubótar og njótið útiverunar um leið og þið styrkið gott málefni.

Nánari upplýsingar eru hjá Úlfari Ágústssyni í síma 892-0318 ulfar@isafjordur.info

Fjölmennum í þessa göngu og verum dugleg að láta þetta berast !