miðvikudagur, júní 2

Vinir í Von ljúka vetrarstarfi !

Sunnudagskvöldið síðasta hittust Vinir í Von að Mánagötu 6 til að ljúka vetrarstarfi og fagna sumri. Pantaður var góður matur og setið fram eftir kvöldi við skemmtiatriði, grín, glens og spjall. Mæting var mjög góð, en nú ætlar hópurinn í sumarfrí og staðráðinn í að hittast endurnærður í haust og hefja starfið á ný í september. Mun samvera vera á sama tíma og s.l. vetur, eða 1. og 3. hvern laugardag í mánuði frá 11:00 - 13:00. Takk fyrir veturinn !