fimmtudagur, febrúar 24

Nýr upplýsingabæklingur Sigurvonar !

Kominn er út nýr upplýsingabæklingur Sigurvonar, en þar er að finna allar helstu upplýsingar fyrir þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra. Útgáfa bæklingsins er styrkt af SPKF, um prentum sá H-prent og Íslandspóstur sér um að dreifa honum í öll hús á norðanverðum Vestfjörðum. Eiga vestfirðingar því von á bæklingnum inn um lúgurnar næstu daga og vill Sigurvon nota tækifærið og þakka bæði Sparisjóði Keflavíkur fyrir stuðninginn, en þeir greiða fyrir prentun og Íslandspósti, sem sér um dreifingu bæklingsins, allt Sigurvon að kostnaðarlausu.

þriðjudagur, febrúar 8

Vinir í Von hittast n.k .laugardag !

Samvera Vina í Von féll niður síðasta laugardag 5. feb. af óviðráðanlegum orsökum, en var færð til næsta laugardags, 12. feb. Farið verður í göngutúr og verður góð súpa á eftir ásamt kaffi, hvetjum félaga til að fjölmenna !