mánudagur, apríl 30

Fundur kl. 14:00, 5. maí á Hólmavík !

Café Riis á HólmavíkKrabbameinsfélagið Sigurvon heldur fund á Hólmavík n.k. laugardag, eða 5. maí. Hefst fundurinn kl. 14:00 og fer fram á Café Riis. Þorsteinn Jóhannesson yfirlæknir verður með fyrirlestur og boðið verður upp á kaffi og meðlæti. Vonum við að sem flestir sjái sér fært að mæta

þriðjudagur, apríl 17

Íslensku forvarnarverðlaunin 2007 !

Vorum að fá þær fréttir að Krabbameinsfélagið Sigurvon hafi verið tilnefnt til Íslensku forvarnarverðlaunanna 2007. Þetta er mikill heiður fyrir okkur og verður spennandi að fylgjast með afhendingu verðlaunanna sem fer fram á morgun, miðvikudaginn 18. apríl kl. 14:00 í Forvarnarhúsinu

þriðjudagur, apríl 3

Styrkir í formi gjafakorts !

Gleðigjöf
Félagið er að útbúa kort sem bæði er hægt að nýta fyrir beinan fjárhagslegan styrk til félagsins og eins ef fólk vill gleðja einhvern með kveðju og peningagjöf til félagsins, þá er kort sent viðkomandi með upplýsingum um að félaginu hafi borist gjöf frá "x" aðila. Ef þið viljið nýta ykkur þetta, sendið þá tölvupóst með upplýsingum og eins ef þið viljið frekari upplýsingar, þá endilega hafið samband