fimmtudagur, mars 30

Viðtöl verða fimmtudaginn 6. apríl 2006

Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi verður með viðtalstíma fimmtudaginn 6. apríl og er hægt að panta tíma í síma 456-5650 á opnunartíma skrifstofu og í síma 867-7942. Skrifstofan er opin þriðjudaga 10:00 – 12:00, miðvikudaga 10:00 – 12:00 og fimmtudaga 11:00-13:00. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir og tímapantanir á netföngin sigurvon@krabb.is og sigurvon@snerpa.is

þriðjudagur, mars 28

Aðalfundur 6. apríl kl. 20:00 - MUNA

Munið aðalfundinn 6. aprílNú styttist í aðalfundinn okkar og verður hann haldinn á Hótel Ísafirði fimmtudaginn 6. apríl n.k. kl. 20:00. Kaffiveitingar verði í boði Sparisjóðs Vestfirðinga. Bryddað verður upp á nýjung á fundinum og mun Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi og verkefnisstjóri hjá Krabbameinsfélagi Íslands flytja fróðlegt og skemmtilegt erindi. Einnig mun Gunnjóna Una bjóða upp á einkasamtöl varðandi félagsleg réttindi og fleira sennilega 6. apríl og birtum við frekari upplýsingar næstu daga varðandi tímapantanir o.fl.

þriðjudagur, mars 14

Vinir í von hittast 18. mars n.k.

Vinir í von minna á næstu samveru laugardaginn 18. mars kl. 11:00 við Suðurgötu 9. Farið verður í göngu um Eyrina og endað á sameiginlegri súpu !

fimmtudagur, mars 9

Varað við ljósabekkjanotkun fermingarbarna

Varað við ljósabekkjanotkunÞessa dagana er verið að senda foreldrum og forráðamönnum fermingarbarna póstkort þar sem bent er á hætturnar sem fylgja því að ungt fólk fari í ljósabekki. Skilaboðin á kortinu eru frá Félagi íslenskra húðlækna, Geislavörnum ríkisins, Landlæknisembættinu og Krabbameinsfélaginu. Þetta er þriðja árið sem þessir aðilar standa saman að fræðsluherferð undir slagorðinu “Hættan er ljós”.

Á póstkortinu er vakin athygli á því að börn og unglingar séu næmari en aðrir fyrir skaðlegum áhrifum geislunar frá ljósabekkjum og sól. Bent er á að tíðni húðkrabbameins hafi aukist mikið á síðustu árum, einkum tíðni svonefndra sortuæxla, en þau eru alvarlegasta tegund húðkrabbameins og algengasta tegund krabbameins hjá konum á aldrinum frá 15 til 34 ára. Foreldrar og forráðamenn fermingarbarna eru hvattir til að hafa í huga tilmæli alþjóðastofnana um að börn og unglingar fari ekki í ljósabekki.

Í samvinnu við Biskupsstofu hefur verið leitað til presta landsins um að leggja málefninu lið og dreift hefur verið veggspjöldum sem hengd verða upp þar sem fermingarfræðsla fer fram.

Í kjölfar fræðsluherferðanna síðustu tvö ár hefur dregið verulega úr ljósabekkjanotkun ungs fólks og nokkrar sveitarstjórnir hafa hætt að bjóða upp á sólböð í ljósabekkjum í íþróttamannvirkjum sínum. Með herferðinni nú er stefnt að því að draga enn frekar úr ljósabekkjanotkuninni.

Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins greinast að meðaltali 45 manns á ári með sortuæxli í húð, 45 með önnur húðæxli og um 170 manns með svonefnd grunnfrumuæxli í húð. Tíðni húðæxla í heild hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum.

Frétt frá Félagi íslenskra húðlækna, Geislavörnum ríkisins, Landlæknisembættinu og Krabbameinsfélaginu, 9. mars 2006.

Upplýsingar gefur Halla Grétarsdóttir fræðslufulltrúi hjá Krabbameinsfélaginu, sími 540 1900.

miðvikudagur, mars 1

"Vinir í von" funda 4. mars kl. 11:00

Stuðningshópurinn Vinir í von mun funda n.k. laugardag 4. mars kl. 11:00 á skrifstofu félagsins að Suðurgötu 9. Hvetjum jafnt aðstandendur sem krabbameinsgreinda að fjölmenna og ræða starfið framundan

Ný heimasíða

Ný heimasíða hefur verið sett upp fyrir Sigurvon og er það von okkar og stefna að hér verði að finna allar þær upplýsingar sem félagsmenn geta nýtt sér