fimmtudagur, september 20

LÍFSTRÉ - alhliða brjóstameinastöð !

Lífstré !Hvet ykkur til að lesa þessa frétt á Vísi.is. Haft hefur verið samband við Sigurvon og óskað eftir að fá að taka þátt í þessari rannsókn, sem kynnt er í fréttinni. Segja þær stöllur, Herdís og Ingibjörg að þær muni koma vestur ef náist saman að lágmarki 7 konur. Það er því um að gera að vera duglegar að hópa ykkur saman og hafa samband beint við þær, Herdís í síma 694-3250 eða Ingibjörgu í síma 694-6939, eða hringja hingað í Sigurvon sími 456-5650 !

miðvikudagur, september 19

Minnum konur á krabbameinsleit !

Bleika slaufan !Minnum konur á að panta tíma í krabbameinsskoðun á Heilsugæslustöðinni hér á Ísafirði. Þessa dagana er teymi statt hér og hvetjum við allar konur til að láta fylgjast með sér og sínum !