þriðjudagur, október 28

Jólakort 2008 farin í prentun !

Kirkjan í Bolungarvík !
Sóltún á Hlíðarvegi !
Þá eru væntanleg jólakort þessa árs og eru þau í prentun. Verða þau send út í verslanir um leið og þau berast ! Sama verð er og undanfarin ár, eða 100 kr. kortið og eru þau seld 10 saman í poka á 1.000.- kr. Jafnframt verður hægt að kaupa stök kort. Listamaðurinn heitir Ómar Smári Kristinsson og hefur hann gefið Sigurvon leyfi til að nota glæsilega teiknaðar myndir sínar, félaginu að kostnaðarlausu. Kortin munu verða til sölu á eftirfarandi stöðum: Húsasmiðjan, Birkir ehf., Hafnarbúðin, Hlíf II, Blómabúðin, Office 1 og Heilsugæslan, einnig verður reynt að koma kortunum til sölu í nágrannabyggðalögum. Hvetjum við Ísfirðinga sem aðra að vera duglega að koma við í þessum verslunum og styrkja þannig gott málefni !

Frestun tónleika vegna veðurs !

Kvartett Camerata!Fresta þurfti tónleikum Kvartett Camerata bæði á Þingeyri og Ísafirði, sem vera áttu s.l. laugardag vegna ófærðar. Tónleikarnir verða nánar auglýstir síðar þegar séð verður fram á að færð verði með skárra móti !

sunnudagur, október 19

Kvartett Camerata í Hömrum 25. október !

Kvartett Camerata !Tónleikar verða í Hömrum, laugardaginn 25. október 2008 kl. 17.00
Aðgangseyrir 1.000 krónur rennur óskiptur til Krabbameinsfélagsins Sigurvonar

Koncert w Auli Szkoły Muzycznej “Hamrar” w Ísafjörður
Sobota 25. październik 2008 godz. 17.00Wstęp 1.000 koron, przeznaczony jest na Fundusz Pomocy Chorym na Raka – Krabbameinsfélagsins Sigurvonar

fimmtudagur, október 16

Aðalfundur gekk vel !

Aðalfundur Sigurvonar !Aðalfundur Krabbameinsfélagsins Sigurvonar fór fram í gærkvöldi á Hótel Ísafirði. Var mikið spjallað og gekk fundurinn vel og meðlæti rann ljúft niður í boði Sparisjóðs Vestfirðinga. Farið var yfir starf félagsins árið 2007 og kosin óbreytt stjórn. Félagsgjöld verða áfram 2.000 kr. og vill félagið nota tækifærið og þakka allan þann stuðning sem það hefur fengið frá upphafi !

fimmtudagur, október 2

Aðalfundur miðvikudaginn 15. október !

Aðalfundur Sigurvonar 15. október !
Aðalfundur Krabbameinsfélagsins Sigurvonar verður haldinn á Hótel Ísafirði, miðvikudaginn 15. október kl. 20:00 ! Kaffi og meðlæti verður í boði Sparisjóðs Vestfirðinga ! Fjölmennum í kaffi !