þriðjudagur, júní 20

Jón Eggert á Ísafirði 7. júlí

Kort af leiðinniJón Eggert Guðmundsson göngukappi verður á Ísafirði 7. júlí, ef dagskrá helst. Hann verður á Hólmavík 26. júní, á Ísafirði 7. júlí, Patreksfirði 15. júlí, Grundarfirði 3. ágúst, Borgarnesi 13. ágúst og svo líkur hann göngunni í Reykjavík 19. ágúst eins og áætlað var

þriðjudagur, júní 6

Karlakórinn Ernir styrkir Sigurvon !

Karlakórinn Ernir í HafnarfjarðarkirkjuKarlakórinn Ernir hélt tónleika í Hafnarfjarðarkirkju í gær, annan dag í hvítasunnu, til styrktar Krabbameinsfélaginu Sigurvon. Kirkjan var nánast full og söfnuðust tvö hundruð þúsund krónur. Tónleikagestir klöppuðu kórnum óspart lof í lófa og söng kórinn þrjú aukalög. Stjórn Sigurvonar vill koma á framfæri þakklæti til kórfélaga og einnig forráðamanna Hafnarfjarðarkirkju, en hún var lánuð endurgjaldslaust. Að lokum óskum við kórnum, stjórnanda og undirspilara ánægjulegrar ferðar um Pólland.
F.h. stjórnar Sigurvonar, Sigurður Ólafsson