fimmtudagur, nóvember 27

Jólakort komin í fulla sölu !

Jólakort Sigurvonar eru komin í fulla sölu. Sama verð er og undanfarin ár, eða 100 kr. kortið og eru þau seld 10 saman í poka á 1.000.- kr. Jafnframt verður hægt að kaupa stök kort. Listamaðurinn heitir Ómar Smári Kristinsson og hefur hann gefið Sigurvon leyfi til að nota glæsilega teiknaðar myndir sínar, félaginu að kostnaðarlausu. Kortin eru til sölu á eftirfarandi stöðum: Húsasmiðjunni, Birki ehf., Hafnarbúðinni, Hlíf II, Blómabúðinni, Office 1 og Heilsugæslunni, einnig eru þau fáanleg í Víkurbúðinni í Súðavík, verlunum N1 á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri, Samkaup-Úrval í Bolungarvík og á Hólmavík. Töluverð eftirspurn er eftir kortum frá fyrra ári og fást þau í Húsasmiðjunni. Viljum við nota tækifærið og þakka góðar viðtökur og aðstoð við pökkun, sem var í höndum Hvestu. Vert er að taka fram að kortin eru eins ísfirsk og hægt er, en þau eru teiknuð, prentuð, pökkuð og seld af heimafólki. Óskum ykkur öllum ánægjulegrar aðventu !