sunnudagur, apríl 1

Beinþéttnimæling í Heilsusetrinu og Vinir í von !

Súpuhittingur :-)
Sigurvon bauð upp á beinþéttnimælingu fyrir skömmu í Heilsusetrinu og komust færri að en vildu. Því miður bilaði tækið og þurfti að senda það suður. Við fáum tækið aftur í lok apríl og munum þá auglýsa það vel og jafnvel taka niður tímapantanir, svo biðin verði styttri. Þökkum við öllum þeim sem mættu síðast, þó fyrirvarinn væri skammur og vonum að allir komist að næst. Vinir í von komu saman s.l. laugardag í súpuhittng, spjall og glens og munu hittast næst laugardaginn 14. apríl, hvetjum við félaga til að mæta, en "hittingur" er að Mánagötu 6, í húsnæði Vesturafls. Minnum á síma Sigurvonar 849 6560, því skrifstofan er lokuð næstu vikur vegna framkvæmda í húsnæðinu, en starfsmaður er alltaf við símann.