mánudagur, janúar 9

Breyttur opnunartími skrifstofu á þriðjudögum !

Breyttur opnunartími verður á skrifstofu Sigurvonar á þriðjudögum í janúar til maí, í stað opnunartíma 10:00-12:00 verður opið 13:00-15:00, óbreyttur tími verður á miðvikudögum, 10:00-12:00 og fimmtudögum 11:00-13:00. Vinir í Von komu saman í fyrsta sinn á nýju ári síðasta laugardag og voru kræsingar á borðum. Fyrsta félagsvist á nýju ári verður annað kvöld kl. 20:00, hvetjum við félaga, velunnara, sem vini og vandamenn að mæta og taka hressilega í spil á nýju ári.