miðvikudagur, júní 25

Orlofsdvalir standa víða til boða !

Eiðar !Sólheimar !
Sigurvon býður sínum félögum upp á frítt uppihald og gistingu í orlofsdvöl og er hægt að velja hvort farið er í Skagafjörð, að Eiðum eða í Grímsnes ! Endilega hafið samband á netfangið sigurvon@snerpa.is eða í síma 456 5650 (skrifstofa), 897 5502 (Bíi) eða 867 7942 (starfsmaður).
Orlofsdvöl (hvíldardvöl) á Löngumýri í Skagafirði í er samstarfsverkefni Krabbameinsfélags Skagafjarðar, Dugs stuðningsfélags krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra í Skagafirði og kirkjunnar. Fyrst og fremst er hugmyndin að gefa fólki sem er á milli meðferða, hefur lokið meðferð eða fólki sem hefur lagt sig fram í starfi innan þessa málaflokks tækifæri til að safna kröftum og njóta samkenndar í góðu umhverfi með hæfilegri áreynslu, fræðslu og í návist maka eða aðstandenda. Lögð er áhersla á góðan mat, hreyfingu við hæfi, fræðsluerindi, helgistundir, kvöldvökur, en umfram allt jákvætt andrúmsloft og viðmót. Fjöldi gistirýma er 26 í 15 herbergjum. Reynt er að afla styrkja til að greiða niður dvölina. Orlofsdvölin er ætluð fólki af öllu landinu. Sumarið 2008 verður boðið upp á a.m.k. þrjú 5 daga hvíldartímabil sem eru: 4. -8. og 28. júlí – 1. ágúst. Síðasta tímabilið verður 4.-8. ágúst. Nánari upplýsingar fást hjá Maríu Reykdal, formanni Dugs, í síma 863 6039 og hjá Gunnari Rögnvaldssyni staðarhaldara á Löngumýri í síma 453 8116.
Orlofsdvöl á Eiðum í umsjón Krabbameinsfélags Austfjarða og Austurlands verður 29. – 31. ágúst 2008. Dvölin kostar kr. 2.500.- og er boðið upp á fræðslu og skemmtun. Upplýsingar fást hjá Jónínu Guðmundsdóttur í síma 861 2313, netfang: kraus@simnet.is
Orlofsdvöl á Sólheimum í Grímsnesi 22. – 29. maí og 21. – 28. ágúst 2008 (frá fimmtudegi til fimmtudags) og í Bláa lóninu síðustu vikuna í janúar. Orlofsdvölin er í boði Bergmáls og skráning fer fram hjá Kolbrúnu Karlsdóttur í síma 845 3313. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni http://www.bergmalid.is/

miðvikudagur, júní 4

Kraftur í kringum Ísland !

Kraftur í kringum Ísland !Þann 16. júní leggja vaskir Eyjamenn og konur í hringferð í kringum Ísland á tveimur 15 manna gúmmíbátum, verkefnið nefnist „Kraftur í kringum Ísland“. Tilgangur ferðarinnar er að kynna starfsemi Krafts – stuðningsfélags og safna styrkjum í leiðinni. Megin tilgangur ferðarinnar er þó að kynna Kraft og allt sem í boði er fyrir þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur. Fyrirhugað er að bátafólk Krafts muni bjóða bæjarbúum upp á stuttar bátsferðir á gúmmíbátunum gegn vægu gjaldi. Einnig munum við bjóða fólki að kaupa sér leggi á milli staða, þannig að ef þið þekkið einhverja sem langar í ævintýraferð, þá er um að gera að panta ferð, eins ef einhverjir eiga stórafmæli þá er þetta tilvalin gjöf!
Áætlað er að vera á Vestfjörðum, nánar tiltekið, Tálknafirði 19. júní, Bolungarvík 20. júní og Djúpuvík 21. júní. Hér má finna myndir af undirbúningi. Ef þú/þið hafið einhverjar spurningar hringið þá endilega í mig í síma 845 0060. Bestu kveðjur, Hildur Björk Hilmarsdóttir http://www.kraftur.org/
Kraftur – stuðningfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur