föstudagur, apríl 30

Samverustund hjá Vinum í Von !

Minnum á samverustund hjá Vinum í Von í fyrramálið frá 11 - 13 að Mánagötu 6 í húsnæði Vesturafls !

miðvikudagur, apríl 14

Við erum flutt að Pollgötu 4 !

Krabbameinsfélagið Sigurvon er nú flutt og ný skrifstofa hefur verið opnuð að Pollgötu 4, jarðhæð (sama húnsnæði og BT var í á sínum tíma, vinstra megin við apótekið) Enn er eftir að setja upp nokkrar hillur og forfæra á skrifstofunni og koma hinu ýmsa dóti fyrir eins og sjá má á myndum, en þetta kemur allt smám saman :-) Endilega kíkið við og skoðið aðstöðuna, sem er opin frá 10-12 þriðju- og miðvikudaga, en frá 11-13 á fimmtudögum !