fimmtudagur, mars 17

Sigurvon hefur skipt um viðskiptabanka !

Sigurvon hefur skipt um viðskiptabanka og við samruna Sparisjóðs Keflavíkur við Landsbanka Íslands var ákveðið að hafna því að ganga sjálfkrafa í samvinnu við Landsbanka Íslands þ.s. þeir hafa ekkert aðgengi fyrir fatlaða. Hefur Sigurvon gengið til liðs við Íslandsbanka og fært öll viðskipti sín þangað. Okkur hlakkar til samstarfs við nýjan banka, en viljum um leið þakka góða og farsæla samvinnu við Sparisjóðinn.
Nýjar reikningsupplýsingar eru: banki: 0556 hb.: 26 reikn.nr.: 2060 kt. 470102 4540.

miðvikudagur, mars 2

Spilavist Vina í Von !

Ungir sem eldri spila saman !
Vinir í Von komu saman  og tóku í spil í gær og skemmtu ungir sem eldri sér konunglega. Margir hafa ekki tekið í spil frá unglinsárum og eru allir sammála um að það er gaman að rifja upp gamla takta. Aðstoð er í boði fyrir þá sem eru farnir að "ryðga" í spilamennskunni ;o) Minnum líka á laugardagshitting n.k. laugardag 5. mars kl. 11:00 á sama stað.

þriðjudagur, mars 1

Átakið Mottumars hafið !

Hafin er árleg samkeppni á landsvísu í söfnun yfirvaraskeggs í tilefni af átakinu Karlar og Krabbamein. Hvetjum við Vestfirska karlmenn til að láta ekki sitt eftir liggja og hefja söfnun á mottu nú þegar :-D Frekari upplýsingar um keppni, skráningu og fyrirkomulag má finna hér http://www.mottumars.is/ .  Okkur vantar sjálfboðaliða til að selja pinnan og hvetjum áhugasama til að hafa samband við Ingibjörgu Snorra í síma 867 7942.